Viðskiptaskilmálar

VIÐSKIPTASKILMÁLAR MARTINIEYEWEAR.IS - 13. SEPTEMBER 2024 

  1. SKILGREININGAR

1.1.  Seljandi er VH group ehf., kt. 580923-2670. (hér eftir „seljandi“).

1.2.  Kaupandi er sá aðili sem skráður er á staðfestingu pöntunar. (hér eftir „kaupandi“)

1.3.  sameiginglega er vísað til kaupanda og seljanda sem („aðilar“)

  1. UM VIÐSKIPTASKILMÁLA ÞESSA

2.1.  Skilmálar þessir gilda um öll þau kaup á vöru og þjónustu, sem fram fer í gegnum netverslunina martinieyewear.is. (hér eftir „netverslunin“) sem er rekin er af seljanda.

2.2.  Seljandi áskilur sér fullan rétt til þess að breyta skilmálum þessum, í stórum sem smáum dráttum, án undangenginnar tilkynningar.

2.3.  Birting nýrra skilmála telst fullnægjandi þegar þeir hafa verið birtir inn á netversluninni.

2.4.  Kaupandi samþykkir gildandi skilmála með því að leggja fram pöntun eftir að birting skilmálanna hefur farið fram sbr. gr. 2.3. í skilmálunum

2.5.  Lög nr. 50/2000 um lausafjárkaup og venjur á sviði kauparéttar skulu gilda að öðru leiti um það sem skilmálar þessir taka ekki sérstaklega til. 

  1. VERÐ

3.1.  Verð sem gefin eru upp á netversluninni, eru í íslenskum krónum (kr.) og innihalda virðisaukaskatt.

3.2.  Seljandi áskilur sér rétt til þess að breyta verðum hvort sem er til hækkunar eða lækkunar, og bjóða upp á afslætti, án fyrirvara og undangenginnar tilkynningar til viðskiptavina.

3.3.  Heildarkostnaður pöntunar, sem tekur til verð á umgjörð, verð á völdu gleri ásamt flutningskostnaði mun birtist áður en kaupandi staðfestir endanlega og greiðir fyrir pöntunina. 

3.4.  Kaup sem gerð eru á bersýnilega röngu verði, s.s. vegna insláttarvillu eða villu í tölvukerfi eða hugbúnaði, skulu ganga til baka og teljast ekki bindandi fyrir seljanda. Að öðru leiti skal það verð gilda sem fram kemur á staðfestingu pöntunar og því getur hvorugur aðili krafist greiðslu á mismun vegna verðhækkana eða verðlækkana.

3.5.  Afsláttarkóðar eru ýmist ætlaðir öllum almenningi og / eða tilteknum afmörkuðum hópi manna. Verði aðili uppvís að því að misnota afsláttarkóða sem ætlaður var tilgreindum markhópi sem hann tilheyrir ekki, þá áskilur seljandi sér rétt til þess að falla frá kaupum, við það skulu allar greiðslur aðila ganga til baka.

3.6.  Afsláttarkóði er sleginn inn eftir að kaupandi hefur samþykkt skilmála og fyllir út allar nauðsynlegar upplýsingar um sig.

  1. GREIÐSLUMÖGULEIKAR

4.1.  Kaupandi hefur val um að greiða fyrir pöntun sína í gegnum: TEYA/SaltpayAUR eða Netgíró. Hægt er að nota greiðslukort frá Mastercard og Visa í gegnum bæði Aur og TEYA.

4.2.  Staðfesting pöntunar er háð því að greiðsla hafi verið innt af hendi og borist seljanda.

  1. AFHENDING VÖRU

5.1.  Afhending vöru getur aðeins farið fram á Íslandi.

5.2.  Vörur eru afhentar með afhendingarþjónustunni DROPP. Kaupandi greiðir sjálfur fyrir sendinguna nema um annað sé samið og getur kaupandi valið úr völdum afhendingarstöðvum sem DROPP bíður upp á og fram koma þegar gengið er frá pöntun á XXXX.is.

5.3.  Seljandi áskilur sér allt að 6 vikna frest til þess að afhenta sérpöntun kaupanda, enda eigi seljandi ekki valda umgjörð eða gler á lager sínum. Almennt skal þó afhenta sérpantanir á 3-4 vikum.

5.4.  Reynist sú vara sem kaupandi hefur pantað uppseld hjá birga seljanda, skal kaupandi eiga þess kost á að fá endurgreitt að fullu eða inneignarnótu kjósi hann það frekar

  1. GÖLLUÐ VARA

6.1.  Sé vara gölluð, skal henni skilað til kaupanda sbr. gr. 7.2. svo fljótt sem verða má til athugunar. Staðfesti seljandi að um galla sé að ræða skal kaupandi gefinn kostur á að velja á milli þess að fá endurgreiðslu eða nýja vöru sömu gerðar.

  1. SKILAFRESTUR OG ENDURGREIÐSLURÉTTUR

7.1.  Sérpöntuðum vörum, s.s. gleraugum með styrk og sólgleraugum fæst ekki skilað nema um gallaða vöru hafi verið að ræða. Öðrum vörum er kaupanda heimilt að skila og hefur hann 14 daga skilafrest frá því varan var afhent. Varan skal vera ónotuð, í fullkomnu ásigkomulagi, og í óskemmdum umbúðum sem henni fylgdi.

7.2.  Vöru skal skilað á næstu afhendingarstöð DROPP. Upplýsingar um skil má finna á heimasíðu DROPP á vefslóðinni https://www.dropp.is/voruskil. Kaupandi ber allan kostnað af skilum, nema þegar um gallaða vöru er að ræða.

7.3.  Þegar vöru er skilað, fær kaupandi afhenta inneignarnótu, sömu fjárhæðar og varan var upprunalega keypt á.

7.4.  Inneignarnóta gildir í eitt ár frá útgáfudegi og gildir ekki á afsláttum eða útsölu.

  1. VINNSLA PERSÓNUUPPLÝSINGA

8.1.  Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um þær persónuupplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin.

8.2.  Kaupandi veitir seljanda heimild til að safna og vinna úr persónuupplýsingum í þágu markaðsstarfs.

8.3.  Persónuupplýsingarnar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

8.4.  Seljandi geymir engar kortaupplýsingar og fara allar greiðslur í gegnum örugga greiðslugátt TEYA og/eða AUR.

8.5.  Seljandi fer með allar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

  1. VARNARÞING

9.1.  Ákvæði skilmála þessara ber að túlka eftir íslenskum lögum. Rísi mál vegna viðskiptanna skal það rekið fyrir Héraðsdóm Reykjaness.